Vinnufundur um flutning á starfsemi LSH í nýtt húsnæði

30. janúar 2024

Fulltrúar frá HCR funduðu með NLSH vikuna 22.-26. janúar þar sem þau kynntu sér framkvæmdaverkefni NLSH og starfsemi Landspítala. HCR vinnur nú að einskonar “vegvísi” sem á að leiðbeina NLSH og LSH varðandi næstu skref til að undirbúa flutning í nýbyggingar (rannsóknahús og meðferðarkjarna). Stefnt er að því að því að HCR skili skýrslu til NLSH í mars.