Samningsundirskrift vegna jarðvinnu við nýbyggingu Grensásdeildar Landspítala

20. desember 2023

Í dag var skrifað undir samning við Óskatak ehf vegna jarðvinnu við nýbyggingu Grensásdeildar Landspítala.

„Áætlað er að jarðvinnu ljúki í apríl 2024 og mun þá vinna við uppsteypu viðbyggingar hefjast í kjölfarið. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum verði að fullu lokið á árinu 2026,“ segir Sigurjón Sigurjónsson verkefnastjóri hjá NLSH.

Á forsíðumynd: Magdalena Ásgeirsdóttir yfirlæknir Grensásdeildar LSH, Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri NLSH, Óskar Ólafsson Óskatak ehf og Sigríður Guðmundsdóttir hjúkrunardeildarstjóri Grensásdeildar LSH

20-des-innri-oskatak