Tvö ný útboð hjá NLSH

23. október 2023

Búið er að auglýsa tvö útboð hjá NLSH á utbodsvefur.is Vefurinn er rekinn af Ríkiskaupum fyrir ríkisstofnanir og aðra útboðsskylda opinbera aðila.

Annað snýr að endurhæfingardeild LSH við Grensás en fyrsta skóflustungan var tekin að nýrri viðbyggingu við endurhæfingardeildina þann 5. október sl. Nú hefur verið auglýst eftir tilboði í jarðvinnu og lagnir fyrir nýbygginguna sem er 4.400 m2 að stærð og staðsett vestan við núverandi byggingu. Gert er ráð fyrir að nýbyggingin verði tekin í notkun árið 2027.

Þá er búið að auglýsa eftir tilboðum í verkeftirlit sem snýr að tíu mismunandi verkefnum á vegum félagsins. Auglýst er eftir ráðgjöfum með sérfræðiþekkingu á viðkomandi fagsviðum.